|
|
23.01.2007 23:15:31 / vilborg
Ég er komin með nýja síðu!!!!!!!!!!!! http://vilborghrefna.xblogg.is
Hætt með þessa síðu þá!! Komnar myndir og allt inná
hina...
»
22.01.2007 22:22:38 / vilborg
Jæja það er svo sem lítið búið að vera að gerast hjá mér.. Fór
síðustu helgi (ekki sem var að líða) uppí Laugabæ, þar var e-ð
trúbbakvöld. Það var nú ekkert sérstakt, hef alveg skemmt mér betur
en það var ágætt og margir VEEEL í glasi og það var svooo fyndið að
vera edrú og horfa á allt þetta fólk 
En já annars er bara skóli og meiri skóli og svo æfingar og
ræktin. Er farið að leiðast svolítið mikið að vera hérna, langar
bara að fara suður í skóla og geta þá unnið með og haft meira að
gera. Við Árni erum búin að vera í einhverjum misskilning og búið
að vera vesen, hann tók uppá því að við myndum ekki tala saman í
einhvern tíma og það er að fara með mig. Árni ef þú lest þetta þá
vil ég biðjast fyrirgefningar á öllu saman og vona að þú farir að
tala við mig aftur. Ég hef svo engann að tala við núna og gæti
alveg eins sleppt því að eiga síma 
Ég er að reyna að vera í einhverju átaki með að borða bara nammi
um helgar og hreyfa mig nóg, ætla mér að reyna að sleppa alltaf
kvöldkaffi en fer auðvitað ef ég er alveg að deyja úr hungri. Ég
vona að ég sjái mun í lok annar en það er ekkert víst endilega
En vonum það besta og það tekur sinn tíma að koma þessu almennilega
í gang þar sem þú stjórnar engu um mataræði hér og hvenær þú
borðar....
Horfði á landsleikinn í gær og hann var glataður og sá í dag var
bara brilliant Helvíti góðir sko 
Það er Laugamót um helgina, mig langar alveg að keppa en er
ekkert viss um það hvort það verði nokkuð e-ð lið hérna frá okkur,
ekki alveg nógu sniðugt sko. Arna og þær sem eru héðan verða
náttúrlega með sér lið svo þá eru ekki svo margar eftir, Heiða
ætlar heim og e-ð svona... En ef við verðum ekki með þá er bara að
mæta og horfa!
En eins og ég segi þá vonast ég eftir að heyra frá þér Árni og
allt í góðu 
Ég nenni ekki að skrifa meira, veit heldur ekkert hvað ég á að
segja, ekkert spes líf neitt þessa dagana.... En bless í bili
krúsídúllur 
»
08.01.2007 20:56:57 / vilborg
Jæja langt síðan síðast.. Ég er búin að vera að gera mikið í
jólafríinu, vinna og vinna..
Ég byrjaði á að koma í bæinn á fimmtudeginum 14.des. kom frekar
seint en fór svo strax vestur á föstudeginum á eftir, það var
náttúrlega jarðarförin hans Valla. Byrjaði á að fara heim til
Valla, það var geggjað erfitt, sat inní herberginu hans og og skoða
myndir og svona, um kvöldið fórum við á Fimm Fiska og þar var e-ð
fyllerí á liðinu og það fannst mér nú ekkert sniðugt svo ég var
bara að rúnta með Ernu og svo lenti okkur Árna e-ð saman og ég fór
snemma heim. Jarðarförin var síðan á laugardeginum og fór hún mjög
vel fram, sat hjá Jón Magnúsi sem var ekki það auðveldasta í heimi,
hélt bara í höndina á honum til að veita honum smá styrk enda fékk
ég sms um kvöldið og þakkir fyrir það En síðan fór ég með Árna
og Ásgeiri uppí kirkjugarð og það var svo kalt og bara erfitt að
horfa á kistuna, vitandi að hann lægi þarna í henni og væri að fara
niður í jörðina... Árni hjálpaði mér rosalega, hann hélt utan
um mig og hjálpaði mér í gegnum þetta. Ég, Hreiðar, Aron og Kiddó
fórum svo suður eftir kaffið og svona.. Ég bryjaði að vinna strax á
sunnudeginum og var að vinna helling í jólafríinu enda fékk ég vel
borgað þrátt fyrir að þetta hefðu ekki verið nema 14 vinnudagar sem
ég vann.. Náði samt rúmlega 100klst.! En já jólin voru góð, fórum
til Karenar eftir mat og pakka og svona og þar var kaffi, ég var
svo þar um nóttina og fór með þeim í Grundó þar sem var
fjölskylduboð. Hitti Kæju aðeins og svona auðvitað líka 
Áramótin voru svo sannarlega þau bestu ever... Fórum í Hólminn á
ball á laugardeginum 30.des. og þar voru Matti og þeir að spila,
geggjað fjör, en kvöldið endaði nú ekki á besta hátt, við Árni
vorum e-ð ósátt og rifumst svo það var ekki farið neitt svakalega
seint heim Á gamlárskvöld var ég aftur hjá Kollu, við fórum í
mat hjá Lóu sem var bara miög gott og síðan heim til Kollu og ég
gerði mig til og horfðum á skaupið og svo var skotið upp. Rosalega
flott að vera svona fyrir utan bæinn og sjá yfir allt... Elín bað
mig að mála sig og svo fórum við fljótlega inní bæinn, ég fór til
Kæju og við röltum aðeins um og drukkum bjór. Við röltum í partý
til Magga og svo á ball! Þetta var SNILLDAR ball, það besta sem ég
hef farið á, við Eva Kristín og Unnur dönsuðum af okkur rassgatið..
Ég var á rassgatinu og eftir ballið var partý hjá Mána, eg kíkti nú
aðeins en varð nú að fara svo heim að sofa bara  Hehe! En síðan
var haldið daginn eftir suður og halda áfram að vinna. Seinustu
helgi (fyrstu helgina í janúar) fór ég með Baldri að hitta vini
hans og vinnufélaga í partý á föstudagskvöldið og það var alveg
gaman, fórum svo niður í bæ, hehe þetta kvöld endaði nú heldur
ekkert alltof vel, var aðeins of drukkin, en komst þó uppí rúm
Haha.......
En nóg um það fór í afmæli hjá Sigga Erni á Glaumbar á
laugardeginum, þetta byrjaði nú allt saman vel og var mjög gaman en
svo lenti okkur Árna því miður e-ð saman og það endaði með veseni
og ég fór bara snemma heim! Á sunnudeginum (í gær) komu Emmi, Óðinn
og Gauti svo að ná í mig og ferðinni var heitið til baka á Laugar.
Mig langaði að gráta var ekki að vilja fara, var geggjað að spá í
að hætta bara við og sækja um annars staðar en það er aðeins of
seint. En það er búið að vera mjög fínt eftir að ég kom. Mér líður
ekkert smá vel og búin að vera í góðu skapi, komin í mitt rúm, með
mína sæng og ferskt og gott loft   Ahhhh bara
nice sko! En allavega það eru nú komnir einhverjir nýjir krakkar í
skólann og meira að segja bara flottir/flottur strákur, haha! En
maður er nú svo sem ekkert þannig að spá í því hehe Bara segja
mitt álit, haha..
En já Árni minn.. Ég vona að við getum farið að laga þetta og
haft hlutina í góðu, sakna þín (K) Hafðu það gott.. Og bara allir
að hafa það gott því það eiga það allir skilið! 
Þetta var fríið mitt í grófum dráttum, haha.. Ætlaði bara að
hafa þetta stutt og laggott Bless í bili..
»
08.12.2006 17:28:22 / vilborg
Afhverju?? Maður spyr sig afhverju?? Afhverju þarf svona lagað
að gerast? Afhverju fær fólk ekki að njóta lífsins og lifa því vel
og lengi??
Þetta er harður heimur.. Njótið lífsins. Ekki eyða því í
vitleysu eða leiðindi því það er styttra en þið haldið!
Fyrir 3 dögum síðan eru 2 ár síðan ungur yndislegur piltur
kvaddi þennan heim. Hann Reginn okkar ákvað skyndilega þann
5.desember 2004 að kveðja þennan harða heim, því miður. Ég var á
leið úr vinnunni þegar ég fékk að heyra þetta og ég var ekki að
trúa þessu en hágrét síðan, ég fór heim. Við krakkarnir vorum
dugleg að hittast til að veita hverju öðru stuðning. Ég gleymi
aldrei jarðarförinni, hún var frábær, ef svo gott orð má nota yfir
svona sorgaratburð. Kristó og þeir spiluðu og vá þá grét kirkjan,
þetta var svo flott og bara ótrúlega sætt af þeim, skil ekki
hvernig Kristó gat þetta... Þarna var hvíta kistan með honum Reginn
okkar í, þegar athöfnin var búin var kirkjan útí og það var búið að
búa til gítar úr hvítum rósum sem var síðan sett við leiðið líka.
Þetta var erfiður dagur þar sem ég þurfti að vera að vinna, var
send inná lager þar sem ég gat ekki verið meðal fólks án þess að
gráta og líða hrikalega. Þegar ég kom heim var svo afmæli hjá
mömmu, þar sem hún á jú afmæli 18.des. ég rauk inní herbergi og
hágrét. Þetta var frábær strákur og gat skemmt öllum. Ég sé hann
enn þann dag í dag koma labbandi útí kósý í sínum kvartbuxum og
þunna jakka í kuldanum, hann var svo mikið krútt! Það er alltaf
hægt að fylgjast með og lesa gamalt í síðunni hans Regins, mér
finnst voða gott að gera það reglulega þó svo að ég skrifi ekki
alltaf, www.blog.central.is/reginn og minnigarsíðan
sem Hildur er með, www.blog.central.is/reginn_thor ....
Gísli fósturbróðir minn, sonur Betu (kona pabba), hann lenti í
hrikalegu mótorhjólaslysi í sumar. Hann ætlaði rétt að skreppa út
og lenti í þessu hrikalega óhappi, hann skaust af hjólinu og lenti
illa í því. Hausinn
var tvöfaldur hann var svo bólginn, höfuðið var bara í rúst og
honum var haldið sofandi í nokkra daga. Það sér ekki á honum í dag,
ótrúlegt hvað þessir læknar ná að gera. Það mesta sem sést er þar
sem slangan var sett í hálsinn á honum, þar er ör. Hann er nokkuð
góður í dag held ég bara nema Beta sagði að það væri e-ð með
minnið, man lítið 2 seinustu ár minnir mig að hún hafi sagt! En sem
betur fer er hann á lífi og allt í góðu. Ég var að skoða myndir af
þessu öllu saman þegar ég var hjá pabba síðast og ótrúlegt að hann
skuli líta svona vel út í dag miðað við hvernig myndirnar af honum
voru eftir slysið. Hann var svo blár og bólginn og ég veit ekki
hvað sko...
Ég fór í skólann í
morgun og fékk símtal í öðrum tíma frá Árna, hann kom ekki upp orði
og ég fattaði að það væri e-ð að en ekki svo slæmt eins og það var
síðan. Hann kom því loks upp og hann Valli okkar var farinn
Ég vissi ekki hvernig ég átti að vera fyrst en þegar ég hætti að
tala við hann hringdi ég í mömmu og sagði henni frá þessu. Ég varð
að fá að fara úr tíma. Fór og hringdi í Hreiðar og svona, hágrét
bara. Skildi þá almennilega hvað hafði gerst. Hann lenti á
ljósastaur í nótt og lést samstundis þessi elska. Við eigum eftir
að sakna þessa drengs mjög mikið, hann hefði útskrifast sem smiður
í janúar en hann kvaddi okkur áður en honum tókst það. Afhverju
gerist þetta svona fyrir jólin, það verða of erfið jól og hvað þá
hjá þeim nánustu
L
Ég átti að fara í
munnlegt próf í þýsku fór uppí skóla en þá hafði hún frétt þetta og
tók mig bara afsíðis og talaði við mig og hélt utan um mig og
reyndi að ræða þetta og svona, hún fór svo og talaði við Sverrir
námsráðgjafa og ég fór að tala við hann og talaði ábyggilega við
hann í klukkutíma eða e-ð.. Við ræddum líka allt annað sem er að
angra mig í lífinu og sem hafði verið frá því á yngri árum. Við
ætlum að laga þetta og skipuleggja líf mitt svo ég geti farið að
lifa því án þess að vera alltaf óhamingjusöm og ósátt við sjálfa
mig. Hann talaði við íslenskukennarann og ég fæ frest á ritgerðinni
og jafnvel ef ég get ekkert gert þá ætlar hún að meta þaðsem ég er
búin með en ég ætla samt að reyna að klára hana. Hreiðar, Siggi og
Aron eru á leið Vestur og kíkja á Jón Magnús og svona, Jón kallinn
þarf nú á því að halda held ég. Ég bið bara fyrir Guði að þeir fari
varlega og komist heilir, ég trúi nú ekki öðru. Ég sá Valla síðast
þegar ég var að djamma með þeim strákunum í Bænum núna í nóvember,
fyrir tveim vikum síðan... Afhverju þarf fólk að kveðja þennan heim
svona ungt, það á það ekki skilið! Valli var frábær strákur, ég
þekkti hann nú þónokkuð, aðalega í gegnum strákana, Hreiðar og
Sigga. Við vorum oft að skemmta okkur saman í denn
L
En núna er það allt
búið, erfitt að hugsa til þess. Gleymi líka aldrei ferðinni frá
Skaganum þegar það voru einhver leiðindi í bílnum og Valli varð
eftir í Borganesi...
Ég vil votta
fjölskyldum beggja þessarra yndælu drengja alla mína samúð... Hugsa
til þeirra yfir hátíðarnar og bara allt það góða sem þeir gerðu
fyrir þennan heim! Maður veit ekki hvað maður hefur fyrr en misst
hefur, eins og sagt er. Þeir eru með okkur í anda og við skulum
bara minnast þeirra og vona að þeir hafi það gott þar sem þeir eru
núna!
Það hafa 28 látist
í ár og árið ekki enn búið, það létust 19 í fyrra....... Spennið
beltin og akið varlega! Heppnin er ekkert alltaf með okkur, því
miður
L
Kveðja Vilborg
Hrefna... Á eftir að hugsa til ykkar strákar alla mína tíð og
tímana sem við áttum saman.. Á eftir að sakna ykkar endalaust
mikið, vonandi hafið þið það gott þar sem þið eruð núna!
R.I.P. Reginn og
Valli... 
Harður
heimur.................................
L
»
07.12.2006 21:40:28 / vilborg
Á sunnudagskvöldið fórum ég, Andrea og Lárus í lónið uppí
Mývatnssveit og vá hvað það var nice, líka bara að gera e-ð annað
en að hanga alltaf bara hérna í leti..
Ég er búin að vera voða utan við mig þessa dagana og voða lítið
geta lært. En annars er búið að vera nóg að gera í lærdómi, fór
ekki á neina fótboltaæfingu í vikunni en er búin að vera að fara í
ræktina og reyna að losa mig við björgunarhringinn Geðveikt nice
áðan þá fórum ég, Anna og Andrea í ræktina og svo pottinn á
eftir....
Annars erum við í félagsfræði 303/stjórnamálafræði að gera
framboðsverkefni. Við erum að bjóða okkur fram, við erum skipt í 3
flokka og ég er í XFF öðru nafni Frumkvölar Framtíðarinnar, haha
sniðugt nafn sem hann Bjössi kom með. En já það voru kynningar á
flokkunum í dag og svo eru kosningar og svona á morgun, rosa gaman.
Sá flokkur sem fær flest atkvæði fær 10 í einkunn fyrir
það, næst flestu atkvæði 9 og fæstu atkvæðin fær 8 í einkunn.
Voða skemmtilegt eða þannig, eins mikinn áhuga og ég hef á
stjórnmálum, Birna kennari var e-ð að tala um það sem þyrfti að
gera, það voru kjörseðlar og e-ð, ég veit svo mikið um stjórnmál að
ég varð að spurja Önnu hvað kjörseðill væri En það er svona,
það eru ekki allir fullkomnir 
Fór í sálfræðipróf í dag og vá hvað ég er fallin, mér er líka
sama þar sem þetta var vængefið erfitt og kennarinn ekki góður og
þetta var í fjarnámi. Ég og Ína erum að keppast um hvort fellur
betur í áfanganum og það eru verðlaun, að vísu bara sleikjó eða e-ð
En svo er munnlegt próf í þýsku á morgun Ekki alveg að kunna
þýskuna sko en það fer vonandi ekki svo illa! Svo er bara að klára
þessa blessuðu ritgerð á morgun og skila henni 
Það eru síðan bara próf framundan í næstu viku, ég fer heim á
fimmtudaginn (eftir viku) Hlakka svo til, fara að vinna og svona
   En þetta er nóg í bili.....
Þúsund kossar og knús, Vilborg Hrefna!
»
02.12.2006 13:47:11 / vilborg
Jæja það hefur lítið á daga mína drifið núna undanfarið.. Ég fór
suður seinustu helgi og hitta mömmu og alla fjölskylduna.. Fórum í
skírn á Laugardeginum og fékk litla skvísan nafnið Heiðbrá Ósk. Það
var yndislegt að hitta alla fjölskylduna og svona, svo var veisla
og á sunnudeginum var svo afmæli hjá litla brósa og þá var önnur
veisla, þetta var nú meiri sukk helgin Fór með Herði Óla norður
aftur eða í Blönduós og þaðan með systir Gilsa og síðan kom Lárus
að ná í mig á Akureyri 
Það er alveg hellingur að gera þessa dagana og næstu 2 vikur
Ekki alveg að nenna því, ég er að fara í próf í íslensku á
mánudaginn, próf í sálfræði á miðvikudaginn, skila stórri ritgerð á
föstudaginn, próf síðan alla næstu viku Er búin í skólanum næsta
fimmtudag eftir próf og þá er ég komin í jólafrí og fer að vinna
  Það er að segja hvernig og hvenær ég kemst heim 
Gærdagurinn var frekar ömulegur hjá mér Reifst mikið við Árna
og það er það sem ég vil síst af öllu  En svona er þetta. Allir
geggjað spenntir fyrir árshátíð og eyddu öllum deginum í þetta,
nema ég.. Ég var hérna ennþá í íþróttabuxum, brjóstahaldara og með
hárið útum allt klukkan 17:00 í gær og þá varð ég nú að fara að
gera e-ð.. Ég fór og gerði mig til og var ekki lengi að því, ég var
til rétt rúmlega 17:30! Siggi týndi kom í gær og fá sápu hjá mér og
svona og hann var svo sætur og sagði að ég væri eins og drottning í
þessum kjól en auðvitað varð ég að skemma það og segja að ég væri
ekki í kjól Hehe en já síðan kom Lárus að ná í mig og Andreu
og keyrði okkur þangað sem árshátíðin var. Maturinn var svo sem
fínn en ég er bara ekkert alltof mikið fyrir fínann mat Ég varð
nánast södd um leið og ég byrjaði að borða eins og ég var svöng
þegar við mættum þarna.
Það voru kosningar í seinustu viku, herra og frú þetta og þetta....
Ég var kosin í 3.sæti ásamt Heiðu í frú heillandi Laugaskóla Var
nú ekki alveg að skilja það en jæja, það er ekki verra að vita það
Hehe..
Skemmtiatriðin voru fín og vann Tröllasteinn efri hæð og áttu það
sko alveg skilið, þar sem þau voru með lang besta atriðið!
Við fórum heim og ég skipti um föt og síðan fór Lárus að skipta
um föt svo fórum við og Þorbergur með Birki og Jóni Þór uppí
Laugabæ. Ég var nú ekkert alveg í stuði til að vera þarna, veit
ekki afhverju.. Var e-ð svo þreytt og svona. Ég fékk mér einn bjór
og sat þarna e-ð með fólkinu og svo ákváðum við bara að rölta heim
og fara að sofa.. Fól var nú e-ð að skemmta sér frameftir þar sem
það voru allir e-ð voða þreyttir í mat áðan Hehe stundum er gott
að fara bara snemma heim og sofa 
Ingvar var nú samt ekki sáttur með að ég hafi ekki komið á
Húsavík þar sem við höfum ekki hisst í mörg ár. Ingvar er sem sagt
strákur sem var með mér í fótboltaskóla í Englandi, sumarið eftir
að við fermdumst Hehe, svo var ég nú vakin með símhringingu
klukkan hálf 12 og það var hann Hilmar að hringja og spurja hvort
ég vildi ekki koma á Akureyri í kvöld og djamma, hann ætlaði þá að
ná í mig.. Ég veit nú ekki alveg hvað ég geri, er ekkert alveg að
nenna því, þá líka læri ég ekkert.. En ég sé til hvað ég geri

En já ég ætla ekki að hafa þetta meira í bili.. Bið bara að
heilsa og vona að ég nenni að koma með annað blogg á næstunni
Lofa að gera það ef ég hef tíma! Bleble
»
21.11.2006 18:40:37 / vilborg
Ég verð bara að segja eins og er þá hefur mér ekkert liðið neitt
svakalega vel og nóg annað að hugsa en að blogga.. En allavega þá
ákvað ég að setja hér inn nokkrar línur þar sem ég hef ekkert að
gera..
Það hefur lítið á daga mína drifið.. Bara skóli, skóli og enn
meiri skóli.. Það eru ekki nema 3 vikur eftir með þessari svo próf.
Ég er búin að fá vinnu um jólin í Múlakaffi, þar sem mamma er að
vinna og held að það verði bara hörku stuð.. Ég verð kannski bara
að vinna 24/7 og kem svo drulluþreytt aftur á Laugar eftir áramót.
En nóg um það, það er enn það langt í þetta! Mér gengur ennþá vel í
íslensku en ekkert spes í hinum. Þýskan er svoooo leiðinleg að það
hálfa væri mikið meira en nóg og þessi helvítis stærðfræði sem ég
skil ekkert í, þetta er líka ömuleg bók sem við erum með 
Það var nú bara róleg helgi síðustu helgi. En næstu helgi er ég
að fara suður í skírn á laugardeginum og annars ætla ég bara að
fara til Hreiðars og skemmta mér Það verður geggjað gaman, ég og
strákarnir eins og þetta var í gamla daga þegar maður var alltaf að
fara í Hólminn og gista hjá ömmu yfir helgi.. Haha!!!
Þetta er búið að vera ógeðslega skrítið og bara þvílíkt erfitt
eftir að við Árni hættum saman, ég sakna hans svo mikið að ég gæti
dáið. Ég veit ekkert hvernig ég á að vera og á rosalega erfitt með
að halda aftur af mér að vera alltaf að tala við hann.. Við töluðum
jú saman á hverjum degi og núna bara gæti ég alveg eins sleppt því
að eiga síma.. Vildi bara segja þér Árni að ég elska þig enn og mun
alltaf gera, það er ekkert sem hverfur En hafðu það sem best,
átt það svo sannarlega skilið.. Eins og bara allir, það eiga allir
skilið að líða vel sama hversu slæmar manneskjur þær geta verið

En jólin fara að nálgast og það er einmitt tími þar sem maður er
með fjölskyldunni og finnur fyrir hlýju og væntumþykju og mér
hlakkar svo til að komast heim og hitta fjölskylduna mína, fæ að
gera það næstu helgi og enn meira í jólafríinu (ef ég verð þá ekki
bara að gista í vinnunni, ef ég verð að vinna það mikið) HAHA!! En
ég veit ekki mikið hvað ég á að segja. Maður þarf að fara að taka
sig á í lærdómi ef maður ætlar að ná þessu öllu Þetta gengur
ekki, það er miklu minna eftir af skólanum en maður heldur.. En já
ég er allavega búin að ákveða mig hvað ég geri eftir áramót og er
búin að sækja um hér á Laugum aftur! Veit að ég bölvaði þessu skóla
útí eitt þegar ég byrjaði hér en það er annað í dag. Það er fínt að
vera hér fyrir utan allan þennan kulda og hvað það er of oft ekkert
að gera hérna.
Ég bið bara að heilsa í bili og hlakka til að fara í bæinn og
hitta fólkið mitt um helgina, sérstaklega mömmu Hún og Halli eru
nefnilega búin að vera á Kanarý í 3 vikur og eru sem betur fer
komin heim og ég fæ að sjá þau næstu helgi Ble ble
»
13.11.2006 16:30:03 / vilborg
Jæja langt síðan síðast..
Það var sem sagt löng helgi ekki þessa heldur seinustu helgi og
fór ég með Alex á Akureyri og tók þaðan flug suður. Ásdís frænka
kom og ná í mig á flugvöllinn og keyrði mig heim til mömmu, því
miður er mamma úti á Kanarý svo ég hitti hana ekki en hún er búin
að spjalla e-ð við mig og er búin að skemmta sér æðislega vel og
hafa það gott (K) Sem er bara æðislegt!! En allavega ég var hjá
Helgu Rut litlu sætu systur minni Og fór síðan og labba á móti
Karen þegar hún var búin að vinna.. Haldiði að það hafi ekki bara
komið þrumur svo labbaði ég aðeins lengra og þá byrjaði svoleiðis
að rigna eins og hellt væri úr fötu og loks kom haglél Þetta var
ekkert smáræði, úff.. Ég var rennandi, afturendinn allavega
Haha.. Undirgöngin voru full af vatni þegar við ætluðum að fara þar
síðan 
En allavega þá var síðan bara skroppið smá í búðir og svona
rólegheit. Við Karen fórum í ljósum kvöldið Geggjað nice. Nema
hvað ég varð að skilja tærnar eftir í tröppunum þegar ég var að
labba upp og var btw í of stórum inniskóm og gat ekki stigið í
tærnar það sem eftir var af deginum og hálfan laugardaginn
Vöknuðum á laugardagsmorgun, ég gaf Aþenu að borða og lék svo við
krakkana svo þau gömlu gætu sofið pínu lengur, við fórum svo öll í
sund og svo var ferðinni heitið í Grundó.. Hitti fullt af yndislegu
fólki og fór í fertugsafmæli hjá Didda og það var klikkað gaman.
Eftir það fórum við Árni og Kæja í Hólminn á ball og þar var
svoleiðis dansað og skemmt sér.. Þetta var æðislegt ball, takk
fyrir það Kæja mín, LOVE YOU!! En já á sunnudaginn var Árni að
keppa og bara rólegheit. Við ákváðum að fara suður á mánudeginum
þar sem við höfðum ekkert að gera í Hólminum, gistum heima hjá
mömmu og svona. Við verlsuðum nú e-ð og svona.. Ég fór nú reyndar í
Mambo í Firðinum á þriðjudaginn og konan spurði hvort ég væri ekki
systir Helgu Rutar og fór að reyna að finna e-ð á mig og svona, ég
keypti nú bara það sem ég fór til að kaupa en fékk afsláttinn
hennar Helgu Rutar, það munar um að eiga sæta systur Hún er sem
sagt módelið fyrir hana í Mambo En já Árni keyrði mig á
flugvöllinn og síðan flaug ég á Akureyri, hitti Ínu og Guðrúnu og
flugvellinum..Alex og Örlygur komu og ná í mig og við fórum á
kaffihús og e-ð vesen áður en við komumst á Laugar..
Vikan var róleg, bara skóli og svona.. Lárus og Þorbergur komu
að ná í mig á föstudagskvöldið og við fórum heim til þeirra og
fengum okkur bjór. Á laugardaginn aftur þá var líka drukkið jú og
það var svakalegt. Þetta kvöld var geggjað skemmtilegt og ég var
örugglega ein að dansa eða e-ð Haha ekki þekkt fyrir að sitja
bara á rassgatinu þegar verið er að skemmta sér, nei mín dansaði
sko En já það endaði ekki eins vel þetta kvöld og það byrjaði
Ég var nú ekki þunn á sunnudeginum frekar en vanalega en þetta var
nú samt letidagur, haha Í dag og gær er ég búin að fá að heyra
svolítið um að ég hafi verið svakaleg þarna um kvöldið og það er
bara hlegið af því. Það er líka búið að spurja mig hissa hvort það
sé runnið af mér Skil ekkert afhverju Hehe en allavega þakka
öllum Lauganemum fyrir góða helgi (gott kvöld) haha.. En allvega þá
er komið nóg í bili... Over and out!!
Það eru myndir af kvöldinu uppí Laugabæ komnar inná síðuna
Endilega skoðið og líka kvitta 
»
27.10.2006 13:10:28 / vilborg
Jæja ég var svona að hugsa um að skrifa e-ð héðan af Laugum..
Skólinn á Laugavatni er sem sagt að koma til okkar í kvöld og það
verður gert e-ð skemmtilegt með þeim eins og að keppa í ýmsum
íþróttum og sundlaugapartý á morgun og svona  Vonandi að þetta
verði góð helgi.. En allavega þá fæ ég að heyra það reglulega að ég
sé með kynlíf á heilanum :/ Skil ekki alveg afhverju, haha.. Eða jú
kannski, það er kannski vegna þess að ég þarf alltaf að misskilja
allt kynferðislega og alltaf að vera að tala um e-ð svoleiðis..
Hehe en það er bara gaman af því! Það er gert grín af því hérna að
ég tali vitlaust 8l Ekki alveg að ná því sko.. Og það er vegna þess
að ég segi Akureyri með g eins og bara allt annað heilbrigt fólk
haha.. En nei ég á víst að segja það með áherslu á K!!!!! Er það nú
ruglið ha? En ég skal segja ykkur það.. Okkar æðislegur RÚLLUHLIÐ,
það kannast enginn við það hér  Það segja allir RISTAHLIÐ!!!
Kommon, maður þarf að læra að tala upp á nýtt ef maður ætlar að
vera hér  En ég tala bara eins og ég tala og rífst yfir því þegar
fólk segir ristahlið, þetta er rúlluhlið, ég segi það og þá er það
svoleiðis,, Haha!!  En allvega þá er mest lítið frétta bara nema
ég er að bíða eftir pakka frá mömmu og búin að vera að bíða núna
þessa viku og hringdi í dag og hann kemur um 2 leitið en ég þarf
samt að labba uppí Laugabæ og ná í hann, hann kemur ekki í skólann
 En það er í lagi, maður hefur nú gott af því að labba.. Það er
alltaf svo gaman að fá pakka. Maður er svona að spá í að fara í
átak, allavega reyna að gera e-ð í þessu.. ÉG er búin að þyngjast
um 3 kíló síðan ég kom hingað  Mamma vill meina að það hafi farið
e-ð annað, haha því hún segir að ég sé að hverfa  Hehe En já
allavega þá ætla ég ekkert að hafa þetta lengra, segi kannski e-ð
frá helginni eftir helgi ef ég nenni... Það er allavega e-ð að
gerast á Laugum svona til tilbreytingar  Kominn tími til.. En
allavega þá kveð ég bara að sinni og heyrumst kannski eftir helgi
eða bara einhvern tíman.. En sáuð þið það er bara stutt á milli
blogga hjá mér núna  Ég er svo dugleg. En veist ég sagði þetta er
tíbískt að það komi ekkert á næstunni, haha! Bleble!
»
24.10.2006 13:10:02 / vilborg
Blogga segið þið.. Hvað er það?? Hehe! En allavega þá er ég ekki
mikið búin að vera að gera þannig séð. Ég var í prófum í síðustu
viku, fékk útúr einhverjum í gær og einhverjum í dag og svo eru
auðvitað einhver eftir  Heh ég fékk 2.3 í fél 303, hehe bara
skondið að ég hafi fengið svo hátt.. Það fengu flestir e-ð í
kringum 2-3 en svo voru einhverjir sem fengu 6 og svona, haha.. En
allavega þá var ég í dönsku í morgun og hún bað mig að koma og
kíkja á prófið og ég bara shit, sagði að ég gæti frekar dáið en að
kíkja á það. Við fórum e-ð yfir það og lá þarna í hláturskasti yfir
öllum þessu heimskulegu villum og hvað ég nennti ekki að gera neitt
í þessu prófi heldur skrifaði bara e-ð einhversstaðar en svo kom að
þýðingunni og hún reif mig upp, ég sem hélt að ég væri verst í
henni  En viti menn, mín endaði bara með 5.5.. Ég fékk íslensku
einkunnina í gær og var ekki alveg nógu sátt og fólki langar að
drepa mig fyrir það, ég fékk sem sagt 9.. Var með 9.5 og 10 í öllum
verkefnum og svona en svo fékk ég 7.4 fyrir ljóðskáldaverkefnið
(hún tók svo strangt á því og aðalega voru greinaskil og svoleiðis
villur) og 8.5 í lotuprófinu svo það lækkaði mig geggjað niður og
ég var geggjað fúl  Hehe en svo fékk ég útúr þýskunni í dag og ég
fékk í lokaeinkunn fyrir þessa önn 8  Nokkuð sátt en miðað við
hvað mér gekk vel í byrjun þá er smá svekkur í þessu  En það er
ekkert sem maður getur breytt núna.. Stærðfræðin er bara rugl sko,
vængefinn kennari, hann kennir ekki neitt sko og svo var prófið
eins og að lesa kínversku og ég bað um hjálp en skildi hann ekkert
betur  Endaði með 6.5 í stæ      Hehe en allavega þá er ég
ekki búin að fá útúr fleiri prófum svo ég get ekki meira sagt frá
því.. En ég fór til Árna um helgina. Fórum í bæinn á föstudeginum
og hann var að keppa og ég fór að horfa, hitti Mumma minn   
Geggjað gaman að sjá hann  Ég fór að versla, það gekk e-ð
erfiðlega ef ég passaði í buxur yfir mittið þá pössuðu þær ekki um
lærin en ef þær pössuðu þar þá voru þær víðar í mittið, hata
þetta.. En svo var bara kíkt í heimsókn og borða og svona og farið
heim. Við fórum á leik hjá Unni á laugardaginn og ýmislegt. Þetta
var rosalega róleg helgi og ég fór snemma heim á sunnudeginum... En
gaman að segja frá því að hér er SNJÓR    Æðislegur snjór,
mjúkur og skemmtilegur, ekkert slabb eða neitt... JEYY!! Geggjað
gaman  En já allavega þá nenni ég ekki meir.. Ég var víst búin að
LOFA að blogga eftir helgi, haha.. Brynja er alltaf að koma með
skilaboð frá systur sinni um að ég eigi að blogga svo það er eins
og gott að hún kvitti bara!! Annars blogga ég ekki aftur fyrir þig,
haha  En allavega, kveð að sinni.. Ble ble englabossar
»
02.10.2006 11:13:52 / vilborg
Jæja ég hélt að ég myndi deyja við að bíða eftir helginni, svo
vorum við endalaust lengi á leiðinni En allavega það var geggjað
erfitt að ljúga að Árna, sagðist hafa skroppið á Akureyri og e-ð
rugl. Þeir töpuðu leiknum og hann var víst alveg þvílíkt svekktur
og ég sagði við hann að það myndi lagast þegar ég myndi koma og það
var lítið sagt meir síðan en allavega þá tók Unnur svo á móti mér
og ég labbaði inní herbergi hjá honum (hann sat í tölvunni og sneri
baki í hurðina) og sagði bara hæ, hvað segiru? Hann sneri sér við
og hélt að þetta væri Gunnhildur svo starði hann bara og sagði HA!!
HEhe algjör snilld.. Svo fór ég til hans og hann tók svo fast utan
um mig og var svo ánægður, vá held ég hafi aldrei séð hann svona
ánægðann Hann kreisti mig svoleiðis, það var æðislegt.. En eins
og ég sagði við hann að það myndi lagast með leikinn þegar ég kæmi
þá gleymdi hann honum allavega í bili Hann var í sjokki allt
kvöldið og var bara ekki að ná þessu.. En annars var helgina alveg
æðisleg, vá hvað ég var ekki að vilja fara. Ég táraðist við að
kveðja Árna þetta var svo erfitt. Það var svoo erfitt að fara. Ég
og Elín (úr Borganesi) vorum að deyja og langaði svo ekkert aftur í
skólann, þetta var svo æðisleg helgi hjá okkur báðum.. Árni var
svolítið upptekinn eins og vanalega um helgin; æfingar og dæma. En
ég fór með honum í skólann á föstudaginn og það var geðveikt að
fara þarna aftur, langaði svo að flytja bara aftur og fara í
skólann þarna. Hitti Kæju mína og svona. Það var ball á
laugardeginum en við vorum svo löt að við nenntum ekki. Þetta var
voðalega róleg og notaleg helgi, bara æðisleg Við borðuðum
reyndar alveg helling af nammi Nett samviskubit í minni núna..
Hehe! En allvega þá er ég komin á Laugar núna og ekkert gaman
lengur. Sakna Árna ekkert smá mikið.. En það eru bara 17 dagar þar
til ég fer næst vestur     Hlakkar geggjað til, get ekki
beðið.. Samt svolítið langt En allavega þá kveð ég bara í bili.
Vildi bara koma með smá svona, veit ekkert hvað ég á að segja
annars.. Nema að ég átti frábæra helgi með kærastanum og sakna hans
endalaust mikið núna.. Bæbæ í bili!
P.s. Var að eignast litla frænku og óska Halldóru, Sigga og
Sævari innilega til hamingju með litlu prinsessuna  
»
25.09.2006 16:11:15 / vilborg
Jæja það er lítið búið að vera að gera hjá mér annað en það
vanalega bara. Nema það að mér hlakkar svo til að fara í Hólminn um
helgina að ég er að deyja 
En já sem sagt íslensku kennarinn er ótrúlega sátt með þennann
áfanga, sem sagt 503, segir að verkefnin séu frábær miðað við hvað
hún hefur verið að fá undanfarin ár allavega Ég er búin að fá
til baka 3 af mínum og var með 10 fyrir eitt af þeim og 9.5 fyrir
hin tvö. Ég er enn langt á undan og hún er rosalega ánægð með það.
Hún ætlar bara að leyfa okkur sem erum á undan að halda áfram, ég
er t.d. búin með það sem ég á að gera í Sjálfstætt fólk fyrir
lotupróf. Ég verð örugglega bara búin með bókina fyrir lotupróf. En
allavega þá fáum við bara að halda áfram á okkar hraða sem er bara
mjög gott svo maður hætti ekki að nenna þessu.. En já það er alltaf
jafn gaman í stæ eða þannig. En í dag var ég látin fara uppá töflu
og skýra dæmi fyrir hópnum, það skyldi enginn hvað ég sagði. Þegar
ég var búin að setja upp dæmið fannst öllum þetta svo flókið og
meira að segja kennarinn skyldi þetta ekki, hann ætlar að setjast
niður heima hjá sér og skoða þetta. Ég allavega fékk rétt útúr
dæminu svona og geri það því svona Hehe!! En já annars er lítið
að frétta. Við erum að fara í e-ð ferðalág á morgun allur skólinn,
til að kynnast betur og svona, í Mývatnssveit. Ég er ekkert alveg
að nenna, missi af fótboltaæfingu, fara í ræktina og íþróttatíma
     Missi ekki af neinum leiðinlegum tímum í skólanum. En
við semsagt verðum yfir nótt og þetta á víst að vera e-ð gaman en
svo fer allt á fullt að pakka niður fyrir helgina Hlakka svo
til, haha ég er að fara yfir um sko.. Við stelpurnar sem erum að
fara saman í bíl erum sko feitast að telja niður, segjum þetta oft
á dag við hvora aðra 
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.. Bið bara að
heilsa!
»
19.09.2006 13:17:45 / vilborg
Jæja ég hef lítið haft tíma til að blogga undanfarið, er búin að
vera svo dugleg að læra, enda komin á undan í einhverjum fögum og
gengur bara geðveikt vel í skólanum.. En ætla ekkert að monta mig
of mikið af því nema bara að ég fékk 10 í sagnaprófi úr 1-2 kafla í
þýsku og búin að fá 9,10 og 8,8 í verkefnum Ekkert smá ánægð..
Þetta er jú fyrsti áfanginn minn í þýsku, Alexandra sagði við mig
að ég hlyti að hafa verið þýskumælandi í fyrra lífi, haha En já
svo er ég á undan í íslensku, langt á undan, kennarinn hefur varla
við að láta mig fá verkefni áður en ég skila þeim svo.. Hún er hálf
hissa að vera með svona nemanda hjá sér, gaman að vera sá nemandi
þar sem allir vita líka hvað ég er alltaf mikill drollari í skóla,
nema núna   Er á undan í stæ og þurfti ekki að mæta í gær né
dag. Kennarinn þar virðist ekkert alveg jafn sáttur við það að mér
gengur vel, hann vill allavega aldrei hjálpa mér, segir mér bara að
bíða svo ég sit þarna tíma eftir tíma og bíð og geri ekki neitt
nema sóa tímanum í vitleysu. Ég fann reyndar sjálf út seinast
hvernig ég átti að gera þetta eftir langa bið og miklar tilraunir..
Mér gengur ágætlega líka í sálfræði í fjarnámi, sem er ekki einfalt
en fékk e-ð um 8 á síðasta verkefni, eftir mikla svartsýni og
leiðindi.. Hehe, ég get þetta ef ég nenni að taka mig til og gera
það, það er ég alveg búin að sjá 
En allavega þá fór ég á Akureyri um helgina og hitta Árna, vorum
á gistiheimili niðrí bæ, sumir fóru á djammið á lau. og áttu leik
um 1.sæti daginn eftir, þvílík heimska.. En allavega þá fór Árni
ekki, við vorum bara í rólegheitum uppá herbergi og svona. Ég hef
aldrei horft á jafnmikinn körfubolta yfir eina helgi, það var
ótrúlegt hvað ég enntist. En já við gerðum voða lítið en
allavega æðislegt að hitta hann og mig langaði að gráta þegar ég
þurfti að kveðja hann Geggjað erfitt að fara frá þessari elsku
En já ég var með samviskubit eftir helgina eftir allt þetta
óholla át svo ég fór í ræktina á sunnudagskvöldið, ekki að spurja
að því hehe. En í gær fór ég í skólann og svo á fótboltaæfingu og
ræktina, ekkert smá gott! Í dag er ég bara lítið í skólanum en nóg
að læra, ég einhvern vegin finn mér alltaf e-ð En ég er að fara
að kenna íþróttir á eftir og hlakkar geggjað til, var seinasta
þriðjudag með yngri krakkana en verð með eldri í dag, ég er alveg
svakalegur kennari í mér Sjáið þið mig ekki fyrir ykkur með
gleraugu á nefbroddinum með túss í höndinni og skrifa á töfluna,
hehe. Nei djók!! En allavega svo strax eftir kennslu fer ég sjálf í
íþróttir sem verður örugglega púl og svo er það ræktin fyrir æfingu
í kvöld.. Maður er alltaf svo duglegur á þriðjudögum  
En ætla ekkert að vera að hafa þetta neitt lengra. Bið að heilsa
í bili!! 
»
14.09.2006 11:01:37 / vilborg
»
08.09.2006 16:06:33 / vilborg
Ég veit um lag sem fer í taugarnar á mér, taugarnar á mér,
taugarnar á mér.
Ég veit um lag sem fer í taugarnar á mér, taugarnar á mér,
taugarnar á mér.
Ég veit um lag sem fer í taugarnar á mér, og gettu hvað það
er!!!
Úff þetta æðislega busalag héðan af Laugum 
Já það er gaman af þessu. Ekki enn komnar inn myndir af
busuninni en það verður gaman þegar þær koma.. Ég er bara búin að
gera mest lítið annað en að fara í skólann, læra, hanga uppí
herbergi að gera ekki neitt og svo má ekki gleyma ræktinna, fer
allavega alltaf annann hvern dag, stundum á milli líka. Við
Alexandra erum allavega duglegar að fara saman hvern dag og svo er
bara undir mér komið hvað ég nenni að gera hina dagana. Það er líka
mikið borðað hérna jú, svo það tekur sinn tíma af deginum.. En já
ég líka tala við æðislega kærasta minn nokkrum sinnum á dag og það
er bara gott að heyra í þessari elsku veist ég get ekki hitt
hann..
Það er barasta að koma helgi og ég mun hanga hérna á vistinni
enn eina helgina að gera ekki neitt nákvæmlega Þetta er svooo
leiðinlegt, en ég fer á Akureyri næstu helgi síðan og hitta Árna
       
Það var líka skondið í gær, Alex var sem sagt hér að spjalla og
lá í rúminu hennar Þuru og ætlaði að teygja sig í ljósið og haldiði
að hann hafi ekki flogið á gólfið og dýnan og allt í rúminu með og
hann lennti með hausinn beint á einhverjum pappakassa, ég dó næstum
úr hlátri og böggaði hann pínu á þessu 
En já ég veit ekkert meira hvað ég á að segja svo ég kveð í
bili.. Sakna þín Árni, love you (K)
»
Síður: 1 2 3 4
|
|